Erna Höskuldsdóttir | mánudagurinn 2. apríl 2012
Árshátíð G.Þ.
Árshátíð Grunnskólans var haldin í gær með tveimur leiksýningum þ.e. morgunsýningu þar sem leikskólinn Laufás var með skemmtileg söngatriði hins vegar og kvöldsýningu annars vegar. Nemendahóparnir fjórir auk leiklistarvals sýndu frumsamin leikrit og söngleik. Útskriftar árgangur nýtur góðs af sýningum en ágóði þeirra rennur í ferðasjóð þeirra og ætlunin er að fara til Kaupmannahafnar í maí. Þessir nemendur stóðu sig vel og komu að undirbúningi hátíðarinnar og sáu um kynningar á atriðum. Nemendur sýndu að þeim er margt til lista lagt og ekki að sjá annað en gestir sýninganna skemmtu sér konugnlega.

| föstudagurinn 23. mars 2012
. Það voru þau Natalía B. Snorradóttir og Michael Aron Einarsson. Það er skemmst frá því að segja að þau stóðu sig með prýði og Natalía gerði sér lítið fyrir og hlaut 2. sæti. Drengur að nafni Hákon frá Grunnskólanum á Ísafirði hlaut 3. sæti og Súðavíkurmær að nafni Alda Marín lenti í 1. sæti.